Heim | Skóladagatal | Foreldrafélag | Hafa samband  | Heilsustefna Iðavallar

Þar er leikur að læra...

eru einkunnarorð Iðavallar.
Daglegt líf á Iðavelli snýst um leik, athafnir, verkefni og samskipti sem miða að því að gefa börnunum fjölbreytt tækifæri til að læra, helst með því að uppgötva og reyna sjálf en stundum með dyggri aðstoð annarra. Verkefni snúast oftar en ekki um áhugamál barnanna og leitast er við að horfa á sterku hliðar hvers og eins, bæði barna og kennara. 

Velkomin í leikskólann Iðavöll.

Um leið og við bjóðum ykkur velkomin í leikskólann okkar Iðavöll, viljum við gefa ykkur upplýsingar um ýmis atriði sem tengd eru starfsemi leikskólans og nauðsynlegt er fyrir foreldra að vita.

Leikskólinn Iðavöllur er fjögurra deilda leikskóli staðsettur við Gránufélagsgötu á Akureyri. Leikskólinn á sér  langa sögu eða  til 1959.

 Hver deild hefur sitt nafn og auk þess eru þær aðgreindar með litum.        

 Jötunheimur   Þrymheimur   Glaðheimur   Álfheimur

Hver deild heldur úti sinni heimasíðu sem hægt er að komast inn á með því að smella á tengilinn deildir hér fyrir ofan eða hnappana hér fyrir ofan.

Deildirnar eru aldursskiptar , yngstu börnin sem eru 2 ára eru á Álfheimi, 3 ára á Glaðheimi, 4 ára á Þrymheimi og svo 5 ára á Jötunheimi. Börnin dvelja eitt ár á hverri deild og flytja svo á milli deilda.

Leikskólinn er rekinn af Akureyrarbæ
og fer Skóladeild Akureyrarbæjar með yfirstjórn leikskólans. Leikskólinn opnar kl.07:45 og lokar kl. 16:15.

Símanúmer skólans er 4623849 og bréfasími 4623249.
Tölvupóstfang idavollur hjá akureyri.is